Eitt helsta hús bernsku minnar brennur nú á Þingvöllum - þau voru ófá sporin sem maður átti út í Valhöll fyrst sem barn að sendast með nesti til stelpnanna sem unnu á símanum - seinna jafnvel að kíkja þar inn þegar enginn mátti vera þar - og allt var lokað - ég vann þar líka 1 haust og nokkur sumur þá á símstöðinni.
Ég vissi ekki hve vænt mér þótti um staðinn fyrr en ég sá hann brenna - óumræðileg sorg einhvern veginn - tregi. Þetta er einn af hornsteinum bernsku minnar - þó oftast hafi þetta nú verið óttalegur sorapyttur....
Kvenféalgsböll, Hlín gifti sig, og fleira og fleira tengist þessum stað þar sem maður sniglaðist iðulega 16 ár af ævi sinni...
Mikið á ég eftir að sakna þess að sjá Valhöll ekki framar....
10.7.09
Valhöll brennur
9.7.09
Skipulag og verkefni
Nú jæja konan er nú þannig að hún getur ekki hjólað - hnéð bara beygist ekki nema smá og ef ég beygi það meira þá bara meiði ég mig ógeðslega mikið - og get það bara eiginlega alls ekki....
Aldrei verið svona slæm í hnénu - svoldið álag að ganga greinilega! Nú til þess að bæta mér upp hjólaleysið fór ég í sund í dag - og synti í 30 mínútur - ánægð með það - gat notað blöðkurnar smá en meiddi mig undan þeim í ristinni hægra megin - hún er alltaf að stríða mér! Sigh...
Það var því bara ein ganga hjá okkur Álaugu í þessari viku - við syndum 1000 metrana eða svo á morgun og svo er það garðvinnan. Hér er verkefnalisti heimaverunnar næstu 2 vikurnar (sem er nú orðin ein og hálf- úff hvað tíminn flýgur.
Kantskera meðfram stéttinni heim að húsinu
Hreinsa meðfram sökklinum
stinga upp grávíðisbeðið og eyða þar fíflum sem hafa sest þar að
kantskera það beð
Stinga upp álfakollsbeðið og taka til í því af miklum krafti :-)
kantskera það beð
hreinsa í kringum safnkassana
Taka upp rabbabarann
hreinsa beðið undir húsveggnum og fá fjölærarplöntur frá Dísu í það - nelliku og jarðaberjamuru til dæmis - silfurhnapp líka....
mála garðhúsgögnin
laga borðið
hreinsa grillið
snyrta svolítið bak við hús þegar allt annað er búið....
Jam nóg að gera útivið og ég þarf mjög margt að gera inni líka...
Letidagur
Jæja það er ekki hátt á minni risið núna - nenni ekki í sund en það er nú ekki útséð með það - ég get ekki hjólað þó veðrið sé svo sannarlega þannig að maður ætti að skella sér á bak - nei þá er hnéð bara alveg ófært um að beygja sig eins mikið og þarf - afar svekkjandi satt að segja og því ætti ég að vera dugleg að hreyfa mig en nei....
En það er nú ekki of seint að fara í sund fyrr en 21:00 í kvöld :-).
Ég hugsa að ég labbi ekki upp á neinar hæðir á morgun heldur syndi 1000 metrana - best að hvíla hnéð í nokkurn tíma enn - og svo verð ég að fá göngustafi það léttir á þegar það er farið niður....
Ég er nú búin að koma blómum í pott - það tók nú ekki nema mánuð :-) og ég er búin að finna garðvettlingana og nú er bara að búa sér til stundaskrá og vinna eftir henni - en ég ætla að eiga einn enn svona - ég geri það sem mér sýnist dag enn....
Dásamleg tilfinning að geta bara ráðið hvað maður gerir þann daginn :-).
Frábært veður dag eftir dag og þvotturinn blaktir á snúrunum, gólfin hrein, ég prjóna við og við, sái í Farm Town og les svo jafnvel inn á milli - ríf upp einn njóla - já svona um það bil bara eitthvað út í loftið og ef ég myndi nú fara í sund þá væri samviskan hrein því mataræðið er ekki arfavitlaust heldur...
Veitir ekki af að ná af sér lopanum sem kom á mann um helgina! Meira hvað mér gengur illa að léttast - um leið og það er ekki rammi utanum mig þá bara búmmiti búmm
En ekki gefast upp og ég er bara að gera það gott í hreyfingunni þrátt fyrir allt!
8.7.09
Barningur
Já eins og ég var nú á góðu róli hér fyrir helgina í minni magakveisu þáááá hefur útilega og óregla í mataræði svona cirka skilað mér á byrjunarreit á ný! En um það er ekki að fást - ég hef þrjár vikur til þess að koma þessu í eitthvað skikk og nú ætla ég að vera með reglufestu dauðans og standa mig vel! Ó já - fara lítið og fara fátt - vinna í garðinum og húsinum og koma einhverju sumarfríis skikki á líf mitt :-).
Er annars að skoða gönguleiðir - annars var nú mín þannig á föstudaginn var að hún gat ekki einu sinni hjólað - hnéð á henni var svo messað eitthvað að það beygðist ekki nema af hlytist ofsa sársauki þannig að þetta var sneipuför hin mesta og hjólið teymt heim!
Var í fjölskylduútilegu - hún var frábær og meira en það - fann nýja gönguleið upp með Rauðsgili og það ætla ég aftur í sumar og þá alla leið - frábær leið og frábær ganga - en nú er ég að fara í Þrastarskóg - við ætlum að liðka okkur stöllurnar og koma okkur í gang - erum hálf stirðar eitthvað blessaðar hnáturnar.
Það er því ekki seinna vænna að klæða sig og koma sér á þokkalegt ról :-).
Takast á við kílóin og svæla þau út með heilbrigðið að vopni - einhvers staðar á ég uppskriftabók frá danska kúrnum - best að líta á það og fara nú í smá húsmæðra leik :-)
3.7.09
Mikil blíða í dag?
Það segir amk veðurstofan okkar. Ekki það mér finnst stundum eins og það sé ekki aaaaaaaalveg að marka hana alltaf - er ekki hægt að segja bara alltaf svoldið hlýtt og kannski rigning? Finnst nú ekki þurfa mikla menntun til þess - :-). Eða kannski er það bara Siggi stormur sem ég hef verið að hlusta á.
Ég er að verða svo þreytt á þessu Icesave máli að ég er að kafna - ég bara skil ekki hvað fólk hélt að myndi gerast? Afhverju þessi læti núna - það er ekki eins og þetta hafi verið að gerast í júní 2009 - o nei við fengum múrsteininn - já jafnvel heilt háhýsi jafnvel í hausinn í október. Og nú er allt vinstri mönnum að kenna - ótrúlegt!
Ég skil ekki hvað fólk heldur að ríkisábyrgð merki og það er gaman að heyra í sjálfstæðismönnum núna - já já það eru allt aðrar aðstæður núna - núna er allt breytt og þeir gætu alveg reddað þessu í dag - í dag er allt öðruvísi en áður!¨
Ég held að fólk ætti aðeins að rifja upp hvað orðið kreppa merkir - sjá svo hvort það skilur hvað djúp kreppa merkir og svo rifja upp dýpstu kreppu sem skollið hefur á vestrænu landi - ja svona sirka síðan í móðuharðindunum! Ég bara meina það! Hvað heldur fólk í alvöru að myndi gerast - við gætum bara haldið áfram og keypt og farið og gert allt sem fyrr?
Við vorum að fá greiðslubreytingu í bankanum, og við þurftum að ganga í gegnum alls konar þetta og hitt og stússast heilmikið og stúlkan í bankanum sagði að það þyrfti að vera svo mikið ferli í þessu öllu saman vegna þess að fjöldi fólks sæktu um breytingar svo það geti farið til útlanda í sumar - svo það eigi nú fyrir sumarfríinu og kannski einhverju nýju í húsið - þetta er ótrúlegt! En svo sem gott, að fólk sjái bara fram á áframhaldandi góðæri.
Nei góðir hálsar - við eigum eftir að verða skítblönk - fólk á eftir að fara á hausinn, missa húsin og bílalánin ganga af mörgum dauðum! Þannig verður þetta bara!
En að öðru - ég fór í Hellisskóg í gær í göngu - það var rosa fínt - næstum klst ganga um ýmsar hæðir - vissi ekki að það væri svona mishæðótt í þessu flatlendi öllu saman. Heilmikil brennsla við að reyna að halda uppi sæmilegum gönguhraða (amk sjá í hnakkagrófina á Áslaugu :-)).
Annars er bakstur, salatgerð og stúss í kringum fjölskylduútileguna um helgina. Mikið stúss og mikið gaman og ekki skemmir veðrið fyrir.
Krakkarnir verða heima og passa húsið - en hvað um það- bless í bili :-)
30.6.09
Dj....
Ristilkrampi dauðans maður! Ég hef ekki verið svona slæm í maganum síðan um tvítugt svei mér þá - ég er bara annan hvern dag að drepast!
Mér sýnist ég alls ekki mega borða neitt sem er feitt - þarf bara að muna það! Fékk mér kjúklingabita áðan og ég held ég sé að drepast! Dísuss....
Held ég verði að fá lyf við þessu - það er ekki hægt að vera svona....
En ég er bara flott eftir gönguna og ég er svo sæl með skóna - það er nú meira hvað munar um að vera í gönguskóm - ótrúlegt!
Ingólfsfjall heimsótt
Hóhó jæja þá var að yfirstíga fóbíuna gagnvart Ingólfsfjalli - við Áslaug töltum í 35 mínútur upp hlíðar þess og klöngruðums aðeins um í grjótinu - það gekk vel - í næstu viku ætlum við að ganga í 45 mínútur upp og svo í þriðju atlögu skal það bara klifið :-). Ég fékk mér nýja gönguskó - Askja heita þeir og þvílíkur munur - ég hefði ekki trúað því! Ekkert illt í rist, ekkert illt í hæl eða ökkla einungis svolítið illt í boganum undir ilinni! Gjörsamlega heilluð af því hve miklu skór geta breytt- ég svo sem vissi það áður en ég hélt að Ecco skórnir mínir væru nú bara býsna góðir en my oh my - þeir eru ekkert miðað við þessa snilld!
En nú er að taka til í húsinu og slappa svo vel af eftir skyr og ber í hádegisverð. Mér gengur vel þessa dagana í mataræðinu og það er bara gott og gaman! Vigtin tosast niður og það eru engir galdrar viðriðnir þetta - bara borða skyr í hádeginu sem oftast og þá á maður inni fyrir ýmsu stigalega séð!
29.6.09
Dagurinn í dag
... er ekki Farm Town dagur! Heldur þróunarverkefnisskýrsludagur, hreyfingardagur, gáfulegur mataræðisdagur, hjóladagur, sunddagur og tiltektardagur! Farðu að gera eitthvað af þessu kona!
28.6.09
Frábær helgi að baki
Nú er kominn sunndagur og kvöld hans runnið upp. Eg er komin heim í hreiðrið mitt eftir útilegu í Hellishólum. Mér gengur vel að vera virkari - hreyfanlegri í útilegum - amk í þessari - en það var eitt af markmiðunum að hreyfa mig nokkuð annan hvorn helgardaginn og náttúrulega ekki missa föstudaginn úr - en það er oft erfitt - það er eitthvað svo mikið að gera :-). En eftir hroðalegasta át Íslandssögunnar - þeas mjög hitaeiningaríkan mat - aðallega gersnúða og haldið ykkur fast - hveiti -kringlur mjúkar -heyrið mig i tveimur svoleiðis eru 10 stig - pælið í því! Maður svo sem veit að snúður er ekki góður fyrir mann þó hann sé gerður heima og minna af sykri og fitu en á að vera samkvæmt uppskrift! Ég held að ég hafi borðað 60 stig eða eitthvað - en með því að vera í 5 klst í golfi í gær hvítþvoði ég nú samvisku mína auk þess sem ég borðaði ekki hroðalega vitlaust í gær og hef hagað mér sæmilega í dag. Það er alltaf svoldið rölt á manni þegar maður gengur frá tjaldvagninum - svo ég hef nú verið á iði í dag í 2 klst rúmlega í dag. Á morgun er það hjól og sund.
Á þriðjudag er það ganga og hjól og jafnvel bara sund líka. Alltaf gott að synda svolítið eftir að maður hefur gengið. Liðkar mann rosalega.
Miðvikudagur þá er það annað hvort önnur ganga, eða hjól sund. Kannski ég kaupi mér árskort í sundlaugina og stöðina þar. Ekki vitlaust - amk er það mjög ódýrt.... Og ég þarf að fara í styrktarþjálfun massíva fyrir Ingólfsfjall :-).
Síðan er það Borgarfjörður - útilega með fjölskyldunni. Það verður bara gaman skal ég segja ykkur.
En stærsta verkefni næstu 3 daga er að gera þróunarverkefnisskýrsluna - hana verður að klára. Ég geri það bara - já og svo þarf að stússast í Grímsævintýrum svolítið. Meira hvað er mikið að gera og fífla beðið í garðinum bíður bara rólegt... hmmmm en klárt er að það fer ekki híhíhí.
Svo má ekki fyllast hér allt af drasli og dóti ó nei - fuss og svei.
26.6.09
Ég er sko að taka til!
Ég var bara orðin svo sveitt ég varð að hvíla mig! Er sko búin með klósettið, já og setja snúða í hefingu amk deigið sem þeir verða búnir til úr! Nú svo Gekk ég á Mosfell í gær - frábærlega mikil og fín brekka það þó fjallið sé nú ekki hátt blessaður hraunbingurinn. En þetta er yndisleg ganga - var 35 mínútur upp og gat vel gengið niður! Ristin var svolítið að pirra mig en það slapp til allt saman. Núúú, svo að því loknu gerði ég eitthvað og ekki neitt - maður þarf nú að hvíla sig, svo fórum við Páll í Hellishóla og tjölduðum vagninum þar og sváfum í yndislegu veðri, en þar verður vinnustaðaútilegan hans um helgina.
Núúúú, svo keyrði ég hann í vinnuna á Hvollsvelli og fór heim að taka til! Þrífa og gera húsið svooooolítið þrifalegra því ég býst við Ástju Björk í heimsókn á eftir og eiginlega getur enginn komið í mitt hús því þar er mjöööööög mikið drasl! og DRULLA.
En sem sagt - búin að þurrka svitann og farin af stað aftur!
24.6.09
Staðan
Því duglegri sem ég er að blogga því duglegri er ég á öðrum vígstöðvum :-)
Bara að halda því til haga að ég synti og hjólaði í dag í samtals í um 90 mínútur. Afar glöð með það. Mataræði í gær var innan orkuþarfa - tala nú ekki um þar sem hreyfing var í 30 mínútur umfram viðmið.
Dagurinn í dag hefur enn sem komið er verið góður. Er ekki búin að reikna fyrradaginn út - þarf að gera það á eftir.
Með því að skrifa og telja stig heldur maður sig á beinu brautinni - maður er svo ótrúlega fljótur að fara fram úr leyfilegum stigafjölda ef maður passar sig ekki - en svo er ótrúlega auðvelt að halda sig innan hans þegar maður er komin í takt.
Ég fór til Áslaugar áðan að skrá stigin en hún er svo mikill talna og stigasérfræðingur að það flýtti fyrir og svo er frábært að hitta einhvern sem er að gera það sama og maður sjálfur í þessum efnum. Mjög uppbyggjandi! Nú er þetta sem sagt allt að koma og ég er í bleika kvennahlaupsbolnum mínum ægilega montin af mér - og er að fara að taka til og létta svolítið á lyktinni í húsinu.
Sumarið er tíminn
þar sem maður ræður sér alveg sjálfur! Ég er búin að moka út úr ýmsum skúmaskotum samviskunnar, dökkum krókum og kimum og losa mig við ýmislegt. Þarf svo að fara að vinna í skýrslunni góðu en í dag er eiginlega of gott veður til að standa í einhverjum raunverulegum verkefnum öðrum en lífsstílsbreytingunni endalausu.
Nú þarf ég að fá mér morgunverð, setja á mig ýmsar hlífar og hendast svo af stað á hjólinu - í sund eftir góðan hjólasprett.
Ég er alvarlega að hugsa um að kaupa mér kort í sundlauginni - það er víst oftast opið niðri en ég þori alls ekki í hringstigann - kannski síðar. Ég get því ekki fylgt æfingaáætluninni um að fara í ræktina og svo pottinn - verð því að auka aðeins við hringinn sem ég hjóla og fara svo í pottinn - ekkert að því.
Ég fór í göngum um Snæfoksstaði í gær með Áslaugu og við gengum ekki einu sinni heldur þrisvar upp á Kolgrafarhól svona til þess að láta hartað pumpa sem það og gerði. Ég var bara fín í fótunum og finn ekki fyrir neinu í dag enda var þetta svo sem ekki nema í 45 mínútur en hóllinn var nokkuð kröpp brekka - á meðan á henni stóð :-).
Göngudagarnir eru því orðnir 3 - 1 klst í senn eða svo og ég er ekki frá því að ég sé að komast í ágætist stand með hjólreiðum og sundi að auki. Það er mjög ánægjulegt að finna smá mun á sér aftur og verða eins og ég var orðin í byrjun maí eftir allt badmintonið og blakið. Það var nú meiri fótavinnan.
Beinhimnubólgan er með besta móti og ristin virðist vera til friðs ef ég tek gigtarlyfin. Það er frábært - og ég er búin að skrifa matardagbók í tvo daga sem er líka frábært því á meðan ég geri það ekki þá verður mataræðið ekki í lagi. Mér tókst að láta hrökkbrauðið vera - með ostinum sem ég sá í hyllingum í gærkveldi og fór að sofa vitandi að ég væri pakksödd og þyrfti ekkert á því að halda. það var smá sigur - láta ekki allt eftir sér.
Frábært að finna að ég hef tökin á ný og vitiði það fer mér ekki að hreyfa mig ekki - það veitir mér alltof mikla ánægju til að ég eigi að sleppa því.
Svo er það bara þróunarverkefnisskýrslan - hún þarf að klárast fyrir mánaðarmót. Stefni svellköld á það.
Over and out :-)
22.6.09
Mörg verkefni framundan
...og útilega, afmæli, útskrift, kvennahlaup að baki! Þetta var bara fínast helgi skal ég segja ykkur.
Mörg verkefni bíða.
Hvunndagsverkin - heimilisstörfin öll - almenn yfirferð í húsinu
svo er hægt að dýpka þau viðfangsefni mikið og fara í skúffur skápa, koppa og kirnur.
Gera þróunarverkefnisskýrslu fyrir mánaðarmót
Koma klára námsskráráfangann hjá Ingvari svo ég verði nú búin með 30 nýjar einingar í haust. Þá er ég komin með fjórðung í master og vonandi ná ég 20 í haust og þá verð ég komin með 50 einingar af 120 - sextíu að ári - þá er ég hálfnuð! Það væri nú gaman! Verður nú gaman.
Svo eru ýmis fjármál sem þarf að vinna með og koma á hreint til að maður sjái til sólar í framtíðinni. Ekkert slæmt útlit með það sem betur fer.
Já það er best að hreiðra um sig í sumarfríinu.... Næg verða svo verkefnin eftir verslunarmannahelgina - fullt að gera!
En smá breyting hefur orðið á - landshornaflakk okkar Páls hefur verið kveðið niður - nú er bara að fara stutt og lítið því hann verður að vinna á meðan vinna er - svo einfalt er það. Sumarfrí eru ekki inni í myndinni.
En nú er best að skella sér í slaginn.
